11maí
Jæja þá eru prófin að baki og er það hið besta mál.
Ég náði stærðfræði 202 eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir svo ég gæti ekki verið sáttari, gekk einnig ágætlega í öðrum fögum held ég.
En nú eru ekki nema tvær vikur í að ég fari í útskriftarferð og er maður óneitanlega farinn að hlakka til þessa! Stefnan er sett á allskonar rugl og skemmtanir þar og talsverða peningaeyðslu.
Það versta er að það styttist í að ég fari að vinna, einn mánuður í það og það er ekki eins gaman þrátt fyrir að unglingavinnan lofi góðu í ár.
Annars óska ég öllum gleðilegs sumars og kærlíksríks sumarfís.
08maí
Ég vil minna á www.blog.central.is/seven_spirur en það er margt í gangi þar.
Spurning dagsins: Hvað hétu þrír eiginmenn Hallgerðar Langbrókar?
05maí
Ég var að spjalla við góðkunningja minn á netinu áðan.
Sá ágæti piltur heitir Andri Geir og var landsfrægur hér á landi í nokkra daga þegar að hið svokallaða baugsmál stóð sem hæst.
Þetta sakamál þótti mjög umdeilt og voru menn ekki á sömu skoðun um sanngirnina í því máli.
Í tilefni þess að það eru komin meira en 2.ár síðan að þetta byrjaði allt saman þá hef ég ákveðið að birta harmarsögu Andra Geirs hér á blogginu mínu vitandi það að þið styðjið hann í gegnum þetta.
Gefum Andra orðið.
Hér kemur saga af mesta bömmer sem komið hefur mig. Ég sver það að þetta er ekki lygi og þessi saga er öll dagsönn. Þetta er um það hvað ein lítil mistök geta verið dýrkeypt þegar allt kemur til alls!
Alltaf þegar starfsmenn Hagkaup kaupa vörur inní búð þegar þeir eru að vinna þurfa þeir að taka kvittunina til að sanna að þeir hafi keypt vöruna en ekki stolið henni. Ég ætlaði að fá mér frönskur og fór þangað sem þær eru og setti þær í poka. Síðan fór ég að hugsa um hverjum ég ætti að bjóða í bíó um kvöldið því að ég átti 2 frímiða á Anger Manegment. Svo að ég gleymdi að fara og borga frönskurnar og labbaði þessvegna beint inná kaffistofu. Þar var öryggisvörður og spurði mig hvort ég hefði ekki kvittunina fyrir frönskunum. Þá fattaði ég að ég hafði ekki borgað þær og var þess vegna ekki með kvittun svo það leit allt út fyrir að ég hefði stolið þeim. Ég var að hugsa um að segja honum sannleikann um að ég hefði gleymt að borga þær en var viss um að hann myndi ekki trúa því að ég hefði bara gleymt því svo ég brá á annað ráð. Ég sagði honum að ég væri nýbyrjaður að vinna þarna og vissi ekki að maður þyrfti að taka kvittunina með þegar maður keypti eitthvað og ég hefði látið kassastarfsmanninn henda henni. Ég sagði að ég myndi fara og ná í hana og sýna honum hana en í rauninni var ekki til nein kvittun svo ég sá að ég yrði að búa til eina í snarheitum. Því brá ég á það ráð að fara inní verslun og ná í annan frönskupoka. Ég borgaði fyrir hann og fékk kassakvittunina sem á stóð: Franskar stærð 2, en það var einmitt það sem ég “stal”. Síðan hennti ég pokanum sem ég keypti inní hillu og labbaði með kassakvittunina inná kaffistofuna til öryggisvarðarins. EN, það sem var að var að tíminn á kassakvittuninni stóðst ekki við tímann sem ég átti að hafa keypt þetta því það sást á kvittuninni að ég hefði keypt þetta fyrir aðeins mínútu og þannig komst það upp.
Ég á núna að mæta fyrir rétt í vikunni vegna þessa 249. króna frönskupoka. Þetta gæti kostað mig marga tugi þúsunda og ég er 16.ára svo þið getið reiknað það út að þetta á eftir að verða mér dýrkeypt. Ég var rekin með skömm, lögreglan kom og yfirheyrði mig og þar sem það var smá liðið á sumarið gat ég hvergi fengið vinnu á Reykjarvíkusvæðinu svo ég neyddist til að fara á sjó í Grímsey! Ég er mjög sjóveikur svo þetta var algert helvíti. Ég var semsé ekki með fullri rænu í þessa 2.mánuði sem ég var á sjó og það skemmtilegasta sem ég gat gert var að sofa, því í rauninni var það, það eina sem hægt var að gera þarna. Ég hef oft hugsað með mér ef ég bara hefði sagt fjandans sannleikann að þá hefði ég getað verið allt sumarið með vinum mínum, ég ætlaði að fara í útileigur og taka bílprófið mitt en þess í stað var ég hrakinn eithvert útí rassgat. Ég gæti þurft að borga háa sekt og er kominn á sakaskrá sem mun hugsanlega eyðileggja framtíð mína og allt útaf 249 króna frönskupoka. Nú spyr ég bara, eiga ekki allir rétt á öðru tækifæri, og gera ekki allir mistök eða á ég þetta allt skilið? Ég hef legið andvaka, þolað niðurlægingu og gengið í gengum margt missúrt allt útaf einum frönskupoka.. Hagkaup treysta fólki greinilega álíka vel og ég treysti kind til að leysa stærðfræðiverkefnin mín. Eins og allir vita er Baugur eitt mesta einokunarfyrirtæki landsins og eiga um 30% af verslunum landsins svo það verður erfitt að fá vinnu aftur. Ég ætla að vona að enginn fái aðra eins útreið hjá Baug og hvet ég alla til að hætta að versla við þá því það er ljóst að ég mun aldrei aftur gera það, allavegana ekki hjá Hagkaup... Þetta er dagsatt og ég lýg engu, ég verð að biðjast afsökunar á orðbragðinu en ég er eins og gefur að skilja svolítið sár vægast sagt. Ég vil sérstaklega þakka mjög góðum vini mínum Dagsa fyrir að birta söguna í heild sinni. Takk fyrir mig og ég vona að þið lendið ekki í neinu svona..
Andri.
Ég og Andri á góðri stundu.
Spurning dagsins: Hver er ykkar skoðun á baugsmálinu? Brugðust allir málshafendur rétt við?
04maí
Jæja nú er klukkan að verða hálf fjögur og það er stærðfræði próf hjá mér eftir fimm og hálfan tíma...
Það er það helsta að frétta að ég er að gera þvílíka hluti hér í FM og hef því ekkert náð að kíkja í stærðfræðibókina.
Spurning um að taka stæ 202 í fjórða skipti á næstu önn eða yrði það fimmta skiptið?
Spurning: Langar þér ekki að kaupa bílinn minn?
03maí
Já það er ekki hægt að kvarta undan veðrinu undanfarin misseri...
Það stefnir allt í þrælgott sumar á þessum bænum... Þarf reyndar að taka 5 lokapróf og ef ég stenst þau öll þá verð ég kominn með 75 einingar í sekkinn, ekki amalegt það.
Prófin búin svo þann 12.maí og þá verður slappað af og byggt upp þol fyrir útskriftarferðina til Spánar, alger snilldarhópur á leiðinni þangað.
Eftir Spán verður maður svo að fara að vinna eithvað og verð ég ásamt fríðum flokki flokkstjóri hjá Fljótsdalshéraði sem gæti orðið gaman.
Svo er stefnan sett á L.ung.A, franska daga, rokkhátíðina á Borgarfirði, um verslunarmannahelgina verður svo eithvað gert og helgina eftir hana skellir maður sér aftur til spánar til að slappa af fyrir skólan.
Nei, ekki leiðinleg dagskrá sem er að fara í gang hjá mér.
Annars eru spurningar með boltan í sumar, hvort maður eigi bara að hætta þessu eða þá jafnvel endurvekja
Tab Extra... Er einhver hiti fyrir því???
02maí
Hið óhugsandi hefur gerst.
Ég er hættur að spila bubbles og hef ákveðið að eyða þeim tíma sem ég nota í þann ágæta leik í að blogga, sumsé 3. tíma á dag.
Heyrið já, það stefndi allt í slaka helgi hjá mér en hún bjargaðist fyrir horn.
Á föstudaginn var ákvörðun tekin að kíkja í party á Einarstöðum eftir talsverðan þrýsting frá sköllóttum félaga.
Lagt var frekar snemma af stað út í sveit og þegar að við vorum komnir á áfangastað rétt uppúr miðnætti þá var búið að henda öllum út, svekkelsi því þetta var ábyggilega frábært party. Við Borgfirðingar létum ekki deigan síga þó og kíktum á Hetjuna sem var ágætt en þar fékk ég allt ókeypis, bæði eithvað djús og svo tattoo.
Eftir lítinn svefn vaknaði ég ferskur sem aldrei fyrr og dreif mig uppí skóla þar sem fyrir blasti 24 tíma námsmaraþon.
Það var nú ekkert svo erfitt en ég entist þó bara í 21. tíma enda dauðþreyttur eftir að hafa lært stærðfræði í 13. klukkutíma og íslensku í 6. tíma.
Sunnudagur fór í svefn og ágæta mynd sem heitir Waiting.
Svo í dag byrjaði ég á því að fara á 4. tíma fund, fór í fótbolta þar sem að liðið mitt vann auðvitað næstum alltaf, horfði á united vinna middlesborough 3-0 og núna sit ég hér skrifandi eithvað leiðindarbull.
SVO ERU BARA 24 DAGAR Í AÐ ÉG FARI Á SALOU ÞAR SEM AÐ STEFNAN ER SETT Á AÐ KOMA SÉR Í GOTT FORM FYRIR FÓTBOLTAN Í SUMAR.
Spurning dagsins: Var þetta leiðinlegasta bloggfærsla sem þú hefur lesið í dag?
Mynd dagsins:

ég og jöggi eiturhressir í afmæli